Sumarið

  • 1
  • 2

Sumarið gekk ágætlega í hestaferðum þó svo hestapestin hafi aðeins verið að hrella okkur, þurftum að vera með fleiri hross í gangi hennar vegna svo hægt væri að hvíla hross sem voru að veikjast. Reyndar var ótrúlega lítið af hrossum sem veiktust í sumar og ekki nema tvö af um fimmtíu hrossum sem voru frekar lengi að ná sér. Vonandi fer þessi pest að renna sitt skeið á enda.