Gisting
Í Steinsholti er rekið lítið gistiheimili þar sem við leggjum áherslu á persónulega þjónustu við gesti okkar, og að fólki líði eins og það sé heima hjá sér. Gistiheimilið er opið frá 1.maí til 30.sept. hægt er að fá gistingu á öðrum tímum einnig ef bókað er með fyrirvara.
Það eru fjögur tveggja manna herbergi með baði og fjögur án baðs.
Hægt er að kaupa kvöldmat en hann þarf að panta með fyrirvara.
Á kvöldin er hægt er að fara í heita pottinn, í göngutúr, eða skreppa á hestbak. Sumir gera þetta allt saman á meðan aðrir vilja bara njóta þess að vera til og slaka á í sveitinni, í fögru útsýni og leyfa kyrrðinni að ráða ríkjum.
Verðskrá
Tveggja manna herbergi með baði 14.000.-kr.
Tveggja manna herbergi án baðs, 10.000.-kr.
Morgunmatur kostar 1.200 Per pers





