Hestaferðir
Að Steinsholti rekum við undirrituð, ferðaþjónustufyrirtækið Steinsholt. Við bjóðum uppá lengri sem styttri hestaferðir, með eða án gistingar, gönguferðir, veitingar og fleira.
Við leggjum ríka áherslu á persónulega og góða þjónustu við viðskiptavinina, að þeim líði sem best á meðan á dvöl þeirra stendur. Liður í því er að hafa reksturinn ekki það stóran, að við sem hér störfum, getum ekki haft eðlileg samskipti við gesti okkar.
Við höfum stundað hestamennsku frá því við munum eftir okkur og tamningar höfum við stundað í árafjöld. Okkar aðaláhugamál er að ferðast um Ísland á hestum. Það er besta aðferðin við að komast í samband við náttúruna, slaka á, frá amstri dagsins, og upplifa sjálfan sig. Fátt veitir okkur meiri ánægju en að vera þátttakendur í slíkri upplifun með þeim gestum sem hér dvelja.
Þú getur sent okkur fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.
Við hlökkum til að hitta þig og óskum þér ánægjulegrar dvalar að Steinsholti.
Með kærri kveðju og þökk fyrir innlitið,
Gunnar Örn Marteinsson og Kari Torkildsen.





