Hestaleiga
Pris liste 2012
en timers ridetur 4.500.- ISK per pers
To timers ridetur 7.500.-ISK per pers.
Dagstur inklusive nistepakke og ca 5 timers ridning .16.000.- ISK per pers.
Steinsholt er mjög vel staðsett með tilliti til lengri og styttri hestaferða. Við erum alveg við brún hálendisins í mjög fallegu umhverfi.
Okkur væri mikil ánægja að leyfa ykkur að njóta þess með okkur hvort sem er í langan eða stuttan tíma- eftir þínum óskum og þörfum. Þið getið komið á hestbak og farið í klukkutíma reiðtúr eða lengur.
Við bjóðum upp á mjög skemmtilega tveggja og þriggja tíma hestaferðir að ekki sé nú talað um hinar frábæru dagsferðir. Í dagsferðunum getur verið um margar leiðir að velja. Hvort heldur er að ferðast með hinni fögru Stóru-Laxá eða með Þjórsá þar sem fólk getur séð fossa og flúðir auk hins forna þingstaðar við fossinn Búða og séð eyjuna Árnes sem Árnessýsla dregur nafn af.
Á eftir útreiðatúrnum er upplagt að setjast inn í veitingasalinn og nýta sér þær veitingar sem í boði eru.
Það er betra að panta með fyrirvara ef þið viljið fara á hestbak svo hægt sé að mæta þörfum ykkar enn betur





