Hrossin okkar
Í Steinsholti er stunduð hrossarækt þar sem lögð er áhersla á að rækta hross sem henta hinum almenna hestamanni, það er þæg og töltgeng hross. Hér fæðast á hverju ári sex til tíu folöld. Þau eru alin upp hér á bænum og ganga frjáls hér í fjallendinu yfir sumarið þar sem gestum sem hingað koma gefst kostur á að sjá þau í sínu eðlilega umhverfi. Þið getið skoðað hrossin okkar hér á síðunni. En þar sem verið er að vinna í síðunni getur tekið nokkurn tíma að koma þeim öllum inn á síðunna





