Ýmsar upplýsingar

Við sem rekum ferðaþjónustuna hér í Steinsholti, heitum Gunnar Örn Marteinsson og Kari Torkildsen.

Gunnar hefur búið í Steinsholti frá því að hann var þriggja ára, Kari er fædd í Noregi en flutti til Íslands árið 1989. Við höfum alla tíð frá því að við munum eftir okkur haft gaman af hrossum og höfum bæði unnið við að temja hross.

Við höfum einnig langa reynslu í að ferðast með fólki í hestaferðum. Það er alltaf jafn ánægjulegt að vera með fólki á hestbaki, hvort heldur með fólki sem er að fara í klukkutíma hestaferð, og hefur aldrei farið á hestbak fyrr á ævinni, eða fólki sem er alvant íslenska hestinum og veit ekkert dásamlegra en að njóta hans í faðmi íslenskra fjalla.

Í Steinsholti rekum við jafnframt gistihús þar sem við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og hlýlegt viðmót. Allir okkar gestir eru einstakir og eiga allt hið besta skilið. Við rekum hérna lítið fyrirtæki sem byggir á okkur sjálfum og þess vegna viljum við kynnast okkar gestum og þjónusta þá sjálf.

Vonandi eigum við eftir að sjá ykkur hér í Steinsholti. Þið eruð hjartanlega velkomin.

Kær kveðja,
Gunnar og Kari


Nafn:
Netfang:
Skilaboð:
* Ruslpóstvörn:
1+1